niður niður vigtin mín
13.09.2006 13:56:45 / olly

í engu stuði !

frá því að skólinn byrjaði hef ég ekki verið í neinu DDV stuði - ég var komin í rútínu þarna í prófunum og svo bara blehhhhhhh. Í síðustu viku fór ég 0,7 niður - mætti ekki vikuna þar á undan og svo í dag 0,5kg upp. Svona er þetta. Verð að nota matardagbókina og verððððððððððð að fara að druslast í einhverja hreyfingu. Þetta gengur barasta ekki. hnusss. Svo er útlandaferð í næstu viku - kampavín og kavíar -eða já alla vega kampavín. En á móti kemur að maður á örugglega efti rað vera duglegur að labba þar - ja amk meira en hér ;) hef ekkert mátt vera að að kíkja á aðra - en þetta kemur - ég skal ekki gefast upp þó hægt gangi !!!! andskkkkkkkk hafi það djöff það er massa geitungur hérna inni - best að reyna að ná honum - Gangi ykkur vel sem eruð í baráttunni kveðja Olly

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 17:21:48 / olly

Fór betur en á horfðis....

já þrátt fyrir ekki fullkomna fylgni við DDV - erfitt í próflestri þegar maður er ekki heima að elda og svona, þá fóru 1,2 kg. YAY.

Gæti ekki verið glaðari ég var búin að reikna með svona hálfu kg.

Seinna prófið á morgun - ekki gengið alveg nógu vel að læra strákurinn minn er lasinn sem hefur þýtt 5 tíma svefn síðustu tvær nætur. Þetta hlýtur að reddast eins og venjulega.

Ciao a tutti

Olly


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 21:00:10 / olly

obbobobb

ehemmm verða að játa að ég var að hakka í mig einn heilan poka af bananasprengjum !!!! Skammi skamm ég veit en djöf... voru þær góðar ;)

Dagurinn á morgun verður betri - því er ég búin að lofa sjálfri mér.

Fékk 9 í prófinu sem var í á þriðjudaginn - jibbý ! frekar ánægð með mig - verð að segja það.

Gleðilega menningarnótt - próflesturinn heldur áfram hérna megin.

kveðja

Olly


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 12:55:34 / olly

fyrsta vigtunin !

Jæja aftur drattaðist ég í Garðabæ en nú sannfærð um létting og já viti menn 0,9kg niður. hefði nú alveg mátt vera þetta 0,1 í viðbót en já ég kvarta ekki.
Horfði á Beautiful People og Supernova svo í gær - smá frí frá prófahelvítinu. Hissa að sjá Magna í neðstu þremur en já því færri sem eftir því erfiðara sérstaklega kannski þegar ekki svo margir eru að kjósa eins og mother fo.... frá Íslandi. Ég er í engu læristuði langar að hanga í búðum bara og eitthvað. En nægur tími í það seinna. Vona að aðrir fari niður líka í þessari viku.
Kveðja
Olly

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 16:26:31 / olly

próflestur !!!

Það eru allir að borða nammi í kringum mig og popp og snakk og god knows what !!! Ég sit með mitt græna te og grænmeti og laumast af og til í eitt og eitt läkerol. Bara svona til að fá annað bragð. Mér var reyndar boðið í Pizzu á föstudagskvöldið og ég fékk mér en mikið minna en venjulega. Annars hefur mér tekist nokkuð vel að vera innan marka DDV svona miðað við að vera að fara á salatbari og ekki vera eiginlega neitt heima. Þetta ætti svo að ganga enn betur eftir prófin 25. ágúst. En maður er að komast af stað og svo verður gaman að sjá hvort það hefur einhvern árangur borði á miðvikudaginn. Hmm ég að fara í próf me ekkert nammi. That's a first. Tek bara með mér  banana og tyggjó - kannski smá Läkerol og auðvitað Pepsi Max. Annars eftir ég fór að drekka grænt te í tíma og ótíma þá hef ég mun minni þörf fyrir maxið mitt. Það er ekki verra.

Hmm það er auðvitað enginn að kíkja á mann eftir svona langt frí en ég verð duglegri að sörfa líka eftir próf ! Kveðja Olly


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 12:37:42 / olly

Með skottið á milli lappanna !

Jæja ég píndi sjálfa mig á fund við vigtina ógurlegu í Garðabænum í gær. Það sem ég skammaðist mín mikið að vera orðin þyngri en þegar ég skráði mig í janúar þá var ég 77,3 en núna sýndi vigtin 83.0. ÖMURLEGT svo ekki sé meira sagt. Mér fannst ég glötuð og finnst og frú vigt fannst það líka þó hún hafi brosað uppörvandi og sagt nú tekurðu þetta !!!  En núna bara verð ég verð ég verð ég að taka gæsina á þetta. Get - Ætla -SKAL !!! Í næstu viku SKAL ég vera búin að taka af mér 1 kg.

Nú er ég í próflestri og er vön að narta í nammi og annað sykurmikið góðgæti allan daginn. Ég hef ekkert fengið mér í 2 daga núna. Drekk grænt te sem óð væri og borða ávexti. En djö.... langar mig í ..... Sykurpúkinn er á svæðinu og hann er svangur. En hann verður bara að fara í "megrun" líka ;o)

Bolly


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 13:19:37 / olly

hvað er að mér !

 hmm síðan síðast hefur heldur betur sigið á ógæfuhliðina núna sýnir vigtin um 83 kg. Ekki nógu gott. Í dag er DDV dagur númer 2. Ég er reyndar ekki farin í vigtun kemst ekki á þessum sumartíma en ég finn heldur ekkert um það að ef maður borgar nýtt skráningargjald þarf það endilega að gerast á byrjendafundi? Ég hef ekki getað hreyft mig síðan í desember sem er ekki til að bæta það. Axlar og bakvandamál. En ég ætla að reyna að bæta úr því sem fyrst. Ömurlegt að þurfa að taka sömu 10 kílóin aftur af. Ég er bara í því. hef tvisar á einu ári náð mér niður í 73kg í Nóv 2005 og svo í Mars 2006 urrrrrr. Agaleysið er þvílíkt. Núna er ég að læra og mig langar svo í nammi. Það gerðist m.a. núna í apríl/maí ég missti mig og svo hélt það bara áfram og sukkferðahelgar og kvöld og og og. En nú er kominn tími enn á ný að snúa blaðinu við. Yes sir ! Verð duglegri núna. Hmm er reyndar að fara út að borða í kvöld, en ætla velja skynsamlega - andsk. hafi það ! Kveðja Bolly


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 18:25:05 / olly

sukkedí sukk

ég borgaði fyrir sukk síðasta mánaðar síðasta fimmtudag þegar vigtin sýndi 1,5 kg meira en í síðustu vigtun.  ég hélt það myndi verða spark í rassinn en ég held bara áfrám í óhollustinn - hef varla látið grænmeti og ávexti inn fyrir mínar varir í svona 4 vikur. ég hlýt að fara að detta í gírinn !!!!!

Vona að öðrum gangi betur en mér - hef ekkert getað bloggrúntast. var að byrja í nýrri vinnu með skólanum og allt kreisí í skólanum.

Svona er þetta - má ekki út af neinu breyta hjá mér og ég dett í pítsur og súkkulaði hehe

Gúdd lökk

Olly


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 13:20:19 / olly

úffí búffi

Ok þrátt fyrir sukk og svínarí þá fór vigtin niður um 400g. samtals 4,2 kg á 6 vikum.  Svo var ég á árshátíð og með ekta sunnudagssteik í gær með brúnuðum kartöflum og rjómasósu og allt !!!! Endaði svo með geðveikum dessert frá dr. oeteker sem heitir Chocolate surprise. ég er vonlaus stuðningsaðili - þið verðið að prófa þetta - svona þegar þið viljið leyfa ykkur eitthvað klikkað - heit súkkulaðikaka með súkkulaðissósu inní og ís og hindber -slurp ! En í dag byrjaði DDV og ætla ég að vera dugleg til 24. mars en þá verð ég með barnaafmæli.  Ég er mun betri í litlu markmiðunum. Takmarkið er líka að fara amk 2 í leikfimi í þessari viku. helst oftar. En þar sem ég er búin að vera mjög ódugleg þá er betra að hafa minna takmark. Svo maður verði ekki svekktur þegar tekst ekki.

Maðurinn minn hins vegar þyngdist um 1,7 frá síðustu vigtun  en missti af í 2 vikur. ég spurði hvort hann væri í sömu fötum og kannski ekki nýbúin að pissa !!! Hann var nú ekki viss.

Ég er svo klikk að ég er alltaf í sömu fötunum á fimmtudögum og pissa alltaf áður en ég vigta mig og borða ekkert 2 tímum fyrir.  Svona geri ég alltaf þannig að það sé raunverulega að marka allt.

Dáldið crazy en virkar fyrir mig.

Góða DDV og átaksviku allir

kveðja

Ollý


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 10:10:39 / olly

ótrúlegt

já ég segi ótrúlegt - því þó vigtin hafi ekki farið mikið niður eða 300 g þá fór hún niður -þrátt fyrir sukk og svínarí síðustu helgi !

Þessi helgi hefur nú ekki heldur verið sérlega góð - Horfði á Bewitched í gær og fékk mér nammmmmmmmiiii ! Djöfull var það gott ég segi ekki annað !

Svo var ég á töltinu í miðbænum í gær og við enduðum á Ömmukaffi (aldrei prófað það áður) og tróðum okkur út af heimabökuðu.

Nýji bíllinn er æði  - Ég er bara í því að "skreppa"

Vona að öðrum hafi gengið vel þessa vikuna -

Ollý


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 21:16:35 / olly

helgi frá helvíti

Já þessi helgi var sko ekki 100% DDV kannski bara svona 1%. ég fékk mér pistasíuhnetur og kex og nammi og bollu og og og......

Ó vell - valið var mitt og ég sé ekkert eftir því. Mig langar bara ekki að hætta öllu  - ég er ekki að finna fyrir að langa minna í kökur og súkkulaði - þó svo að það líði margir dagar frá því að ég fái mér og ætti þar með að vera búin að afeitra eða hvað þetta kallast. Mig langar heldur ekkert að hætta þessu - híhí -

þýðir auðvitað lengri tíma að komast í kjörþyngd - en það er í góðu lagi - margir tala um að til að ná að halda sem best af þá er ekki ráðlagt meira en 500gr á viku af - Max 1kg.  Svo so far er ég í góðum málum og er ekki að hreyfa mig þessa daganna,

ennþá með kvef og stíflaða ennisholu - er að verða geðveik - mig langar í LAUGAR. Vonandi ´seinnihluta af vikunni.

Fékk afhentan nýja bílinn í dag - wooo hoooo ! Fyrst skipti sem ég á (eða glitnir sko) nýjan bíl þó búin að hafa bílpróf í 14 ár góðan daginn

Brrummm brummmm

Ollý


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 10:06:38 / olly

jibbý kóla !

Vigtin fór niður um 1,2 kg í gær - ekki leiðinlegt það. Þá komin 3,5 kg á 4 vikum. Get ekki verið annað en sátt. Þetta hafa jú ekki verið alveg 100% vikur hjá mér. Verða það líklega aldrei hehe - minns er svo mikill gottigrís ! Kallinn var að vinna lengur og komst ekki í vigtun. Better luck next time. Annars bara veikindi á heimilinu - kvebbi og hiti -rosa stuð. Strákurinn líka lasinn og nýji DVD spilarinn hefur komið sér vel - Latibær og Bangsarnir (Bjarnaból) hefur rúllað aftur og aftur og aftur:$ Þið sem ekki hafið prófað - verðið að prófa Tandoori kjúllan - mjög góður - það er ef manni finnst indverskt gott. Ég svissaði lauk,sveppi og rauða papriku með auk smá gúrku og sýrðan. slurrrp ! úff hvað ég er eitthvað andlaus - best að rumpa af þessu ljóta aðferðafræðiverkefni Góða helgi Ollý

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 17:04:27 / olly

Go girl !

Eftir hina glæsilegu kosningu Silvíu Nætur getur maður ekki annað sagt en GO GIRL ! Mér fannst samt Regína best - án gríns það lag hefði getað unnið hela pakketet :)

Veislan í gær - jamm endaði ekki glæsilega - Það var Paella í matinn - mjög hollt sko og ég pikkaði út grænmetið án þess að stela af hinum. En svoooooo my goodness var boðið uppá Neuhaus konfekt - slefffffffff - ég missti mig það er svo einfalt - Djöööööfulll er þetta gott ! ha ! úffff.  Svo var einhver skyrdessert -örugglega með rjóma í - og fersk ber og jarðarberjasósa - svaðalega gott.

Nýtt líf hófst í dag - again ! já það þýðir ekkert annað en byrja aftur og aftur og aftur !!!!

tvö skil í næstu viku Hí - alveg geggjað ! sérstaklega þegar maður er hálf-fatlaður - parkódín Forte og Voltaren rapid eru mínir bestu vinir þessa daganna.

Maðurinn ætlar að elda í kvöld - hlakka til að sjá hvað hann gerir !

Kveðja

Ollý


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 09:29:59 / olly

Kallinn rokkar feitt

Maðurinn minn er að standa sig svo vel - 1 í viðbót niður fyrir hann eða 5,5 kg á 3 vikum - ég hins vegar fór bara niður um 0,2 - þakka nú bara fyrir það pent !

gengur betur næst - GÆS !!!!

Annars er ég að drepast í vinstri öxlinni - erfitt að pikka - best að eyða því í skilaverkefni !

ciao

Ollý


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 09:44:47 / olly

plebbedíplebb

er alveg að drepast úr plebbaskap þessa daganna. Er ekki mótiveruð í neitt hvorki lærdóm né DDV - er búin að svona myndast við þetta eftir minni. En vigtun í dag og svo verður næsta vika tekin af alvöru - með dagbók !!!

Svo er vinkonukvöld í kvöld - sem þýðir kjafta kjafta kjafta og horfa á Desperate Housewifes - yayyyyyyy !

Júróvisjon nálgast óðfluga og erum við hjónin boðin í mat/partý - það verður ekki leiðinlegt. Eins og mér finnst Sylvia Night fyndin þá held ég að það væri ekki ráðlegt að senda hana út hmm nema kannski mánuð áður en keppnin byrjar - eða eins og þessar rússnesku sem fara til allra landa að kynna sig.

Við Íslendingar erum nú með dáldið spes húmór - því er ekki að neita.

Lagið með Regínu er í dálitlu uppáhaldi hjá mér - það væri kúl að senda hana og svo þessa geggjuðu karlaraddir með. Það er þjóðlegt - ekki endilega íslenskt þjóðlegt en svona þjóðlegt sem höfðar til margra og eins og það væri örugglega flott á ensku held ég að það væri meira flott og standa út að syngja þá á ástkæra ylhýra ;)

By the way -flatskjá sjónvarpið er ÆÐI !!!!!

og fyrir fleiri sem eru með snyrtivörusýki - þá er þetta æði ! Mig langar í svona Chaneldót !

http://www.chanel.com/fb/um.php?wsmlentry=ch500&la=en-gb&lo=gb&re=chanelcom&chnprod=MAFMU54X

Ollý


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2